Leita í fréttum mbl.is

Hollands dvöl á enda

Jæja þá er síðasta kvöldið runnið upp, ég flýg frá schiphol flugvelli í Amsterdam á morgun. Skrítið dæmi fór í dag að skila síðustu bókinni á bókasafnið, allt farið heim með póstinum og við erum sem sagt flutt. Já ég mun vinna að heiman síðustu blaðsíðurnar í ritgerðinni og ef allt gengur að óskum klára ég í lok mars. Þetta er furðulegt að það sem byrjaði fyrir 18 mánuðum síðan sé lokið sí svona.

Þessa síðustu daga er ég búin að afreka nokkuð mikið. Ég bjó fyrst hjá Hjalta í Nieuw Vennep og síðustu dagana hér í Amsterdam. Er búin að hitta lið í Leiden og Rotterdam. Farið í bíó í Leiden og á þungarokkstónleika. Svo það er ýmislegt búið að gerast þessar tvær vikur sem ég hef dvalið hér núna.

Amsterdam er frábær borg að búa í og nágrennið líka þar sem ég bjó mest allan tímann. Núna er tímabært að takast á við ný ævintýri hver svo sem þau verða...


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Ég var að panta flug í síðustu viku. Gat valið um að millilenda í Amsterdam og bíða í 5 tíma, eða fara til Zuricch og bíða í kl.t.  Hugsaði mér gott til glóðarinnar að hitta ykkur í meira en kannski hálftíma, en fattaði svo að það verður aldrei framar gaman að millilenda í Amsterdam :o(

Fríður Finna (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Ingvar Bragason
Jón Ingvar Bragason

Ég stunda Mastersnám í Amsterdam og er á heimleið, ótrúlegt en satt. Á þessu bloggi reyni ég að greina frá því sem verður á vegi mínum og hugleiðingar um hin ýmsu málefni.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlist

Dixiebandið Öndin



Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband