Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Lokaverkefnið

Ég byrjaði í gær að lesa bókina sem verður undirstaðan fyrir lokaverkefnið hjá mér. Það gekk frekar erfiðlega að nálgast hana og á endanum þurfti leiðbeinendinn minn að skanna hana inn og ég að prenta hana út. Bókin nefnist "The business of Culture - strategic perspectives on entertainment Media". Í þessari bók er farið yfir þennan iðnað og mér sýnist að megin tilgangurinn sé að vekja athugli á honum sem rannsóknarviðfangsefni. Hver hefði svo sem spáð því að bók sem Tolkien gaf út 1956 og vakti takmarkaða athygli skildi verða heimsþekkt 10 árum síðar og þróast út í þrjár kvikmyndir, tölvuleiki og ýmsan annan varning.

Ég er kominn á fjórða kafla og það vakna nýjar hugmyndir að stefnu með hverjum kafla. Langt er síðan ég las kennslu bók sem vakti þetta mikin áhuga hjá mér, þær eru yfirleitt ekki nein sérstök skemmtilesning.

Í dag ætla ég mér að lesa þrjá kafla í bókinni og ljúka við MIP verkefnið, náði ekki að klára það í gær þar sem að ég fékk ekki allar þær upplýsingar frá öðrum hópfélögum.


Síðasti fyrirlesturinn

Þegar ég var að skrá mig í fög fyrir síðustu tvær annirnar í skólanum komst ég að því að ég þarf ekki að mæta í fyrirlestra aftur í skólanum, sá síðasti er næsta þriðjudag. Ég á í raun bara eftir eitt fag í apríl og maí og það er fag sem ég bý til sjálfur með leiðbeinanda lokaverkefnis. Engin hópavinna, engir fyrirlestar bara ég einn heima að vinna. Þetta þýðir svakalegan aga til að dæmið gangi upp. Ætli þetta verði ekki eins og venjulega að maður er rólegur þar til að það nálgast skiladag.

Annars hefur þessi vika gengið ágætlega hjá mér. Ég náði að lesa það sem ég ætlaði mér í gær og hópverkefnið sem ég er að vinna mjakast áfram. Dagurinn í dag hefur farið í hópverkefnið en við hittumst í hádeginu og núna er ég að vinna minn hluta af verkefninu. Ég komst að því í gær að ég þarf að skila tillögu að lokaverkefninu mínu í lok næstu viku en ég hef í augnablikinu ekki hugmynd um hvað ég vill skrifa nákvæmlega um. Var að spjalla við nokkra skólafélaga í dag og það virðast fleiri vera í þeim sporum. Já það verður nóg að gera næstu daga ef maður á að komast yfir þetta allt saman.

Markmið dagsins: fara yfir kafla 1 og 2 í hópverkefninu


Nýr dagur og sólin skín

Jæja þriðji dagurinn í átakinu að bæta mig í lærdómnum. Þetta mjakast allt í rétta átt, náði að lesa svolítið í gær og skipuleggja vinnuna mína. Maður þarf að beita sig ströngum aga við að halda sig inni nú þegar sólin er farinn að láta sjá sig, blómin skringa út og tréin byrjuð að grænka. Það er líka talsvert áreiti á mér varðandi skátastarfið en ég er að skipuleggja IMWe sem verður um páskana og RoverNet sem er hálfum mánuði eftir páska. Það er nú einmitt þess vegna að ég er að reyna að vinna skipulega þessa dagana.

Það vakti athygli mína á bloggi sem ég las í gær að þar var umræða um plastpoka í búðum. Umræðan var nú ekki út frá umhverfissjónarmiðum þar sem höfundur setti pillur í pokasjóð heldur var verið að ræða afhverju það skiptir búðirnar svona miklu máli að rukka fyrir pokana. Þetta leiddi hug minn að því að ég hef varla keypt poka hér í Hollandi þessa sex mánuði sem ég hef verið hér. Við keyptum innkaupapoka og förum með bakpokan í búðina. Er nú ekki komin tími til að íslendingar hætti þessu poka brjálæði, hugsi um umhverfið og noti endurnýtanlega innkaupapoka, það eru til mun hentugri pokar til að nota svo í ruslið.

Að endingu eru það markmið dagsins: Lesa, lesa, lesa og lesa...


Skólinn og flatsæng

Skólavikan stóra heldur áfram. Í gær varð 80% árangur þar sem mér tókst að ljúka við verkefnið en lokaverkefnið sat á hakanum. Í dag er stefnan að hella sér í það dæmi, smá leti í morgun en nú er það bara að bretta upp ermar.

Markmið dagsins:

  • Vinna í O&I
  • Velja kúrsa fyrir önn 5

Náði reyndar að setja inn myndir frá síðustu helgi, þetta er í  lagi strákar ég ritskoðaði þetta vel...

Ég og ÖrvarReynir og Biggi


Skólaverkefni

Verkefnavinnan er hafinn á fullu núna eftir frekar rólegan febrúar, skólalega séð. Ég er búinn að vera svo mikið á ferð og flugi síðustu þrjár vikur að skólinn hefur setið á hakanum. Svona til að hjálpa mér í þessari vinnu mun ég setja markmið dagsins á netið, veit að það er ekki skemmtulegustu bloggin en held að það hjálpi mér við þessa vinnu. Lofa að deila líka með ykkur hvernig mér gengur að ná þessum markmiðum.

Markmið dagsins:

  • Ljúka við bio-diesel kaflan í MIP
  • Átta mig á stöðunni og gera áætlun varðandi lokaverkefnið

Markmið vikunnar

  • Lesa í O&I og leggja grunninn að ritgerðinni
  • Skrá mig í áfanga fyrir næsta tímabil
  • Undirbúa lokaverkefnið

Afmælisvika á ferð og flugi

Ég átti yndislegan afmælisdag þökk sé Álfheiði og öllum þeim kveðjum sem ég fékk. Fékk einar sex gjafir frá Álfheiði af ýmsum stærðum og gerðum allt frá tímaritum til leikhússýningar. Eins og ég sagði í síðasta bloggi stefni ég á að fagna þessum tímamótum næsta haust á Íslandi.

Örvar mætti á svæðið á þriðjudaginn rétt í þann mund sem ég stakk af til Genfar til að funda um Rovernet3.0. Alltaf gaman að koma til genfar en þetta var hálfskrýtið að skilja Örvar einan eftir en hann bjargaði sér eins og honum er vísan.

Þegar ég kom til baka frá Genf á fimmtudaginn bættust þeir Reynir og Biggi í hópinn. Ég sýndi þeim náttúrulega Leiden og Amsterdam, átti í einhverjum erfiðleikum með að sannfæra þá um að það væri meira að skoða í Amsterdam heldur en rauða hverfið. Þeir sannfærðust þó og skoðuð gamalt skip og skran markað. Í gær var Leiden svo grandskoðuð og hinir fjölmörgu pöbbar borgarinnar nýttir til hins ýtrasta. Örvari tókst að tapa fyrir Bigga í Pool og Póker og bíður þess seint bætur, meira að segja ég vann kallinn í pool og hef nú ekki talist besti spilarinn hingað til. Takk strákar fyrir komuna og ég vona að gólfið hafi verið hinn besti svefnstaður.

Jæja núna þarf ég háaldraður maðurinn að fara að sinna náminu mínu, það hefur lítið farið fyrir því síðustu daga!!!


30 ára í dag

Ég á afmæli í dag, stóri dagurinn orðin 30 ára. Ótrúlegt einhvernvegin hélt ég að maður væri búin að setjast að, gifta sig og eignast börn þegar maður næði þessum áfanga. Nei ekki Jón hann er ennþá að læra og leika sér :-)

Þegar ég var 10 ára var haldið uppá afmælið með Mikka Mús köku, 20 ára var stórafmæli á Catalínu í Kópavogi og 25 ára var haldið uppá það með stæl á Kaffi Vín þar sem hin víðsfræga hljómsveit Boðsmiði lék fyrir dansi. Það er ekkert partý skipulagt í tilefni af afmælinu núna en Örvar, Reynir og Biggi koma í heimsókn um helgina þannig að það verður tekinn lítil útgáfa og svo haldin veisla seinna í ár.

Dagurinn byrjaði vel. Álfheiður eldaði hefðbundin breskan morgunmat og hafði skreytt muffins.


Púnterað

Vaknaði snemma í morgun til að fara út í ostabúð að versla fyrir afmælisveisluna mína (fyrsta hluta) sem verður í Rieneck á morgun. Það er nú svo sem ekki frásögum færandi nema að á heimleiðinni heyrðist þessi líka svakalegi hvellur, allt virtist í lagi og ég hjólaði spölkorn áfram. En vitir menn þessi hvellur stafaði að sjálfsögðu af því að það var sprungið hjá mér. Skrýtin tilviljun að á nákvæmlega sömu slóðum fyrir áramót varð ég fyrir bjóróhappinu, kannski að ég ætti að forðast þennan stað???

Jæja best að klára að pakka og koma sér í flug...


Meira af gestum

Stelpu gengiðÞetta var svakaleg helgi. Eins og áður hefur verið greint frá að þá kom Andrés í stutta heimsókn á miðvikudagskvöldið og daginn eftir komu þær Eva, Inga, Stína og Björgvin í heimsókn. Eva og Inga fóru heim á sunnudaginn en Stína og Bjögvin í gær þriðjudag. Það var mikið gert til að skemmta sér og öðrum um helgina og afrekuðum við að fara tvisvar í Rauða hverfið. Drukkið var þónokkuð af bjór og ég fór með Björgvin í sér ferð í búðina til að sýna hæfni mína að hjóla heim með bjórkassa, tókst stóráfallalaust nema að Björgvin þurfti ekkert að borga fyrir kassann!!! Spilaður var póker og hárið á mér sléttað með sléttujárni (allt komið í rugl aftur núna). Þið getuð séð myndir á myndasíðunni.

Fríður Finna gerði svo stutt stopp á ferð sinni frá Genf hér á Schiphol og við buðum henni út að borða...

Ég er núna á leiðinni til Amersfoort að reyna að sinna skólaverkefni eitthvað áður en ég held til Þýskalands á föstudaginn!!!


Gluggum fækkar í Rauða hverfinu í Amsterdam

Við fórum með gestina okkar í skoðunarferð til Amsterdam um helgina. Borgin var skoðuð hátt og lágt, örlítið verslað. Um kvöldið var farið í hefðbundna gönguferð um síkin sem mynda rauða hverfið og augljóst að borgarstjóri Amsterdam stendur við stóru orðin. "sýningargluggum" sem áður sýndu léttklæddar stúlkur að bjóða þjóðustu sína með áberandi rauðu ljósi hefur verið breytt í bjarta glugga með gínum í sem sína hönnun. Þetta er markvert framtak því að það er ekki mikill sómi að þessari starfsemi í þessu hverfi, þrátt fyrir að það sé eitt af því sem Amsterdam er frægust fyrir. Einnig vakti athygli okkar að á sumum börum er búið að setja upp veggspjöld með áskorun um að tilkynna óhamingjusamar vændiskonur, þ.e. stúlkur sem hafa augljóslega ekki ánægju af starfinu lengur. Já þeir eru sérstakir Hollendingar...

fréttir af gestagangi koma fljótlega...


Næsta síða »

Höfundur

Jón Ingvar Bragason
Jón Ingvar Bragason

Ég stunda Mastersnám í Amsterdam og er á heimleið, ótrúlegt en satt. Á þessu bloggi reyni ég að greina frá því sem verður á vegi mínum og hugleiðingar um hin ýmsu málefni.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlist

Dixiebandið Öndin



Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband