Leita í fréttum mbl.is

Svarti Pétur

Hann Svarti Pétur fór víða síðustu daga og náðu lætin hámarki á fimmtudaginn. Svarti Pétur heitir reyndar Piete á tungumáli gárungana hér í Hollandi og rænir víst ekki banka heldur er aðstoðarmaður Sinter Klaas (ath ekki sama og jólasveinninn). Síðasta miðvikudag fóru Pietar víða og gáfu gjafir frá Sinter Klaas en það er siður að hann geri það daginn fyrir afmælið sitt. Í gær hélt svo Sinter Klaas ásamt Pétrunum (því þeir eru nokkrir með þessu nafni) heim á leið til Spánar.

Við vorum svo heppin að Marielle og Wim buðu okkur heim þennan dag. Á einhvern óskiljanlegan hátt vissi Sinter Klaas nákvæmlega hvar við vorum svo við fengum gjöf, Hollenska klossa, bjór, tösku og stafinn okkar. Mjög fróðleg og skemmtileg kvöldstund.

sinterklaas1sinterklaas2sinterklaas3

Fyrir okkur íslendingana var þetta sérstakt að því leitinu að ekki var boðið uppá sérstakan mat eða klæddu menn sig uppá í tilefni dagsins. Það eina eiginlega sem braut upp daginn voru þessar fáeinu gjafir sem Sinter Klaas skyldi eftir í garðinum fyrir vesælan almúgann.

 

Núna er búið að breyta í búðunum og Sinter Klaas ásamt Piete er horfin og "hefðbundið" jólaskraut tekið við. Reyndar eru útsölur hafnar í búðunum sem kemur okkur spánskt fyrir sjónir en við kvörtum svo sem ekki!!!


Krullað í Kandersteg

Ég var um helgina að skátast í Kandersteg. Við vorum að skipuleggja fund fyrir þá sem bera ábyrgð á starfi 16-22 ára skáta í hverju landi fyrir sig, fundurinn verður í byrjun apríl í Kandersteg. Þetta er frábær staður, reyndar var enginn snjór en veðrið var frábært. Ef þið viljið kynna ykkur Kandersteg þá getið þið farið á www.kisc.ch.

Flaug með EasyJet til Basel þar sem Ella Vala tók á móti mér og bauð mér í mat. Eftir góða stund með Ellu Völu og Dirk var haldið á áfangastað. Á föstudagskvöldið var boðið uppá osta foundu að sjálfsögðu og á laugardagskvöldið var haldið í Krullu eða Curling. Ég hefði nú ekki trúað því að láta fleyginn renna og að sópa væri erfiðisvinna, þetta kom skemmtilega á óvart. Mitt lið tapaði að sjálfsögðu en við skemmtum okkur mjög vel. Myndir af helginni: http://public.fotki.com/joningvar/www-in-kandersteg

Krullað í Kandersteg

Basel flugvöllur er svolítið sérstakt fyrirbæri. Í raun og veru er hann í Frakklandi en hann er rekinn sameiginlega af Svisslendingum og Frökkum. Í miðri flugstöðinni er veggur sem skipti landamærunum, salir 1 og 2 eru í Frakklandi og 3 og 4 í Sviss.

Kom sem sagt heim á sunnudaginn örþreyttur og gærdagurinn var frekar þreyttur dagur. En maður má víst ekki slá slöku við, mörg verkefni eru á skiladegi og svo er próf í næstu og þar næstu viku. Tvær vikur í jólafrí Smile


Já Google er nokkuð gott fyrirtæki

Í verkefni sem ég gerði um daginn í Háskólanum að þá notuðum við Google. Í verkefninu átti maður að hanna nýtt skipurit fyrir fyrirtæki og þá þarf maður að skoða fyrirtækið frá öllum mögulegum sjónarhornum. Google segir að með því að hafa alla þjónustu við hendina að þá aukist ánægja starfsmanna sem skili sér í margfallt betri afköstum. Þeir hafa reyndar verið gagnrýndir fyrir að borga lág laun en ég veit ekkert meir um það. Það er mjög eftirstótt að vinna hjá Google og komast færri að en vilja. Ef þið viljið lesa ykkur til um þetta eða kynna ykkur Google þá bendi ég á síðuna www.google.com/about.htm (um Google).
mbl.is Nuddaður og klipptur í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Partý á Morsweg

Við buðum nokkrum skólafélögum Álfheiðar heim á laugardaginn. Buðum uppá brennivín, Tóbas, bjór, harðfisk og íslenskt sælgæti. Þetta tókst nú bara nokkuð vel hjá okkur, sjá lýsingu á síðunni hennar Álfheiðar.

Ég skellti inn nokkrum myndum frá helginni á http://public.fotki.com/joningvar/party-at-morsweg/

IMG_0553

Breytingar á mbl

Ánægjulegt að sjá breytt mbl, það reyndar kom mér á óvart þegar ég var að vafra á mbl að vefurinn tók smátt og smátt að breytast, svolítið skrítið. Hélt að menn gerðu þetta að næturlagi þegar umferðin væri í minna lagi. Allavega er ég nokkuð sáttur við breytingarnar og vefurinn er orðin talsvert aðgengilegri fyrir vikið.

Ein skemmtileg nýjung er mbl - sjónvarp. Þarna hefur mbl búið til fyrirbæri til að halda utan um stutt viðtöl og fréttaskýringar. Þetta er oft stutt og hnitmiðað efni sem gefur þér nauðsynlegar upplýsingar á skömmum tíma. En galli er á gjöf Njarðar. Nefnilega þegar maður er ekki með bestu nettenginu í heimi og maður býr ekki á íslandi, þarf að þröngva sér í gengnum sæstreing til íslands. Þá nefnilega er þetta dæmi ekki alvega að virka. Fréttatími og þættir hjá RÚV virka ágætlega hjá mér en það tekur ár og öld að ná í mbl sjónvarp. Þetta er eitthvað sem ég tel að menn ættu að skoða að senda út efnið í örlítið lakari gæðum, allavega að fólk geti valið það.


Engin tónlist er svo góð að hún sé yfir gagnrýni hafin

Ég er þeirrar skoðunar að fólk á að geta lýst sínum skoðunum og verið gagnrýnið. En lykil atriði í þessu máli er að fólk geti gagnrýnt með rökum og að þessi rýni til gangs sé byggð á réttum forsendum. Í því samhengi vill ég benda á mjög góða grein eftir Sigurð Flosason sem þið getið fundð á síðunni hjá Matta.

En áfram með málefnið. Segjum sem dæmi að ég gagnrýni uppáhalds hljómsveit þína með því að segja að hún sé með einhæfa tónlist (svipuð hljóma uppbygging og lítil breyting á milli laga) og að textasmíði sé lítil sem engin. M.Ö.Ö mér finnst þetta band vera leiðinlegt. Ég hlít að geta sagt þetta án þess að fá yfir mann að maður skilji þetta ekki og viti ekkert hvað maður er að tala um.

Ef fólk hefur ekki áhuga á að ræða tónlistina, hafa mismunandi smekk og þar fram eftir götunum væri lítill tilgangur með þessu. Tónlist er annað og meira en síbylgja útvarpsins og við verðum að geta tekist á um stefur og strauma hverju sinni. Stundum verður gangrýni að vera ögrandi til að kalla á viðbrögð því með því færðu oft fram skemmtilegri og fjörugri umræðu og kemst að lokum að kjarna málsins.

Hvatning þessara skrifa minna er gagnrýni mín á hljómsveitina Sigur Rós sem mér þykir með afburðum leiðinleg. Ég hef aldrei sagt að það væri léleg hljómsveit heldur að hún nær enganvegin til mín. Sennilega er hún ofmetin en það verður sagan að dæma. Það sem þeim tókst að gera var að fylla "holu" eða "gat" sem var á markaðnum fyrir nýjar leiðir. En þegar fram líða stundir hættir þetta að vera svo mikið "öðruvísi" og fólk fer að krefjast meira þá kemur fyrst í ljós hvort eitthvað meira var á bak við þetta fyrirbæri eða hvort það sigli lönd og strönd og leggi upp laupana.

Engin tónlist er svo góð að hún sé yfir gangrýni hafin!!!


Stórslys

Hann var fagurgrænn bjórkassinn sem rann eftir færibandinu í Digros stórmarkaðnum í gær. Kassinn var strappaður á böglaberann á hjólinu og svo var haldið af stað, 24 fjórar flöskur af Heineken tilbúnar fyrir veisluhöld kvöldsins. Hjólað var yfir götuna á hjólastíginn og vanst ferið nokkuð vel framan af. Þá kom að því að fara yfir næstu gatnamót og í skyndingu þegar þurst var yfir götuna heyrist hið ógurlega hlóð "smass klass" kassin kominn á hliðina og bjór út um allt STÓRSLYS hrópaði ég upp yfir mig. Yfir mig sjokkeraður reyni ég að bjarga því sem bjargað verður og að kemur einn af rónum bæjarins til að hjálpa til, held að hann hafi runnið á lyktina. Niðurstaða málsins er að helmingur kassans er brotin og óvíst með restina. Tilraunir til að bjarga rest voru áranguslausar en við vonum það besta með þá sem komust af í þessum mikla hildarleik.

Ég er ekki alveg kominn með prófið að hjóla með kassann heim!


Sigur Rós Heima

Við fórum til Rotterdam í gær að sjá heimildarmyndina Heima með Sigur Rós. í stuttu máli sagt er þetta mjög flott mynd, sýnir landslagið og landann nokkuð vel. Helsti mínusinn fyrir mig var tónlistinn, sem spilar mjög stórt hlutverk í myndinni. Ef skoðum þetta aðeins nánar:

Styrkleikar - hið góða

  • Í myndinni var farið víða og tekið uppá einstökum stöðum. Flestum stöðum var gerð greinargóð skil og sýnt svolítið skemmtilega frá mannlífinu. Ánægjulegt að sjá hvernig þeir tóku upp svipbrigði og sérstakt athæfi fólks.
  • Viðtöl við hljómsveitarmeðlimi og meðlimi Aminu voru nokkuð skemmtileg. Harður íslenskur ensku framburður kom skemmtilega fram og þau gátu sýnt fram á að þau eru nú bara venjulegt fólk eins og ég og þú.
  • Brassveitin er tvímælalaust plús. Hefði mátt njóta sýn meira að vísu en mjög flott að bæta brasinu inní.
  • Steina og rabbbaragaurinn var tvímælalaust mikill plús

Veikleikar - hið slæma

  • Tónlistin var mjög einhæf. Mér fannst sem ég væri að hlusta á sama lagið meirihluta myndarinnar.
  • Náði ekki að fanga dínamíkina sem hefur greinilega verið á tónleikunum. Mjög veik tilraun í endann sem gerir ekkert annað en að láta manni líða illa við að horfa á þetta.
  • Selárdal var ekki gerð góð skil. Ótrúlegt að eyða miklum tíma í flesta staði en ekki Selárdal sem er mjög sérstakur staður. 
  • Það var ekki minnst á Lúðrasveitina Svan í þakkarlista þrátt fyrir lán á búningum!!!

Leiðir til úrbóta - hið betra

  • Ég hef það á tilfinningunni að tilraunin með tónlistinni sé að fegra allt. Breiðum yfir andstæður og óréttlæti með því að spila tónlist sem hefur róandi áhrif á einstaklinginn. Tónlist á nú líka að vera ögrandi og skemmtileg, ef þið eruð að berjast á móti Kárahnjúkum og álverum að þá þarf maður nú líka stundum að láta í sér heyra. Ætli lagið "It's Oh so Quite" með Björk lýsi þessu ekki best - notið andstæður.

Ég var að hugsa um að gefa þessari mynd 8 af 10 mögulegum í einkunn. En mín loka einkunn lækkar í 7 þar sem mér fannst tónlistin einhæf og myndatakan ekki fanga stemminguna sem á að hafa ríkt þar. Mæli sem sagt með myndinni.


Brjáluð verkefnavinna

Það er mjög mikið að gera núna hjá mér, var að skila einu verkefni í morgun, þarfa að fara yfir verkefni hjá öðrum og skila annað kvöld, kynning á fimmtudaginn og 6 bls yfirlit yfir 5 greinar á föstudaginn. Næsta vika er svipuð. úff ég tók því víst aðeins of rólega í síðustu viku, nóg stress. En eftir næstu viku fer þetta nú að lagast og jólafríið að nálgast. Ég segi nú bara að það er hverjum manni hollt að taka svona tarnir annað slagið.

Við ætlum að skella okkur til Rotterdam á föstudaginn og sjá heimildarmyndina HEIMA með Sigurrós. Þó að ég sé nú ekki meðal aðdáenda þessara sveitar að þá fannst mér trailerinn flottur og ég held að myndinn sé nokkuð góð. En svona "vælin" tónlist er ekki alveg minn tebolli. Á laugardaginn ætlar Álfheiður að bjóða nokkrum Grikkjum heim og kynna þeim fyrir íslenskum venjum, boðið veður uppá brennivín, tóbas og harðfisk.

En það er best að fara að koma sér í skólann og halda svo áfram að vinna verkefni.


Jújú Schiphol er næsta stoppistöð

Síðustu vikuna hef ég þurft að fara á hverjum degi í skólann í misgáfulegum tilgangi. Frekar fúlt að ferðast með hálftíma með lestinni til að mæta í 15 mínútur, en svona er þetta víst. Í gær gerðist sá merki atburður að ég fór í skólann til að vinna hópverkefni sem við erum að gera. Í þessu verkefni erum við að taka viðtal við stjórnendur hjá IBM ráðgjöf hér í Hollandi um nýjar lausnir sem þeir eru að koma með á markað, ég má víst ekki ræða um það nánar þar sem þetta er svo nýtt að þetta er trúnaðarmál. Við sem sagt hittumst og lögðum drög að verkefninu og svo ákvað ég að fara heim seinipartinn. Á slaginu þrjú fer ég úr skólanum og geng greiðlega út á lestarstöð og á endanum þarf ég að hlaupa brautarpallinn til að ná 15:11 lestinn sem fer beint til Leiden. Kem móður og másandi um borð í fyrsta lestavegninn ákveð að fá mér sæti á neðri hæðinni og hlamma mér niður í fyrsta lausa sætið sem ég sé. Það er ekki frásögu færandi nema mér til mikillar undrunar heyri ég að tveir menn í næstu sætaröð eru að spá hvort að næsta stoppistöð sé Schiphol flugvöllur. Eftir smá umhugsunarfrest ákveð ég ná að hjálpa landanum í þessum vangaveltum og segi: "jújú schiphol er næsta stoppistöð". Nokkur undrunarsvipur kemur á greyið mennina og annar spyr svo býrð þú hér, ég svara nei ég er í háskóla hér rétt hjá. Við áttum þarna stutt samtal og þeir fóru svo út á Schiphol. Þetta mun vera í fyrsta skiptið sem ég lendi í þessari aðstöðu hér og það fyrir hreint ótrúlega tilviljun.

Skilaboðinn með þessari sögu eru að þú veist aldrei hver er að hlusta!!!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jón Ingvar Bragason
Jón Ingvar Bragason

Ég stunda Mastersnám í Amsterdam og er á heimleið, ótrúlegt en satt. Á þessu bloggi reyni ég að greina frá því sem verður á vegi mínum og hugleiðingar um hin ýmsu málefni.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Tónlist

Dixiebandið Öndin



Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband